In order to view this page you need Flash Player 9+ support!
Kennararnir mættu í sínu fínasta pússi í tilefni dagsins.
| Farandkennarar frá Skotlandi? | Stelpurnar í 8. bekk mættu í búning..... | og10. bekkingar líka. |
Á öskudaginn stendur Foreldrafélag skólans fyrir Grímuballi í Félagsheimilinu fyrir 1.-7. bekk sem hefst kl:13:30.
Skemmtunin hefst á því að „kötturinn“ verður sleginn úr tunnunni og tunnukóngur krýndur.
Jón Bjarnason mun sjá um að halda uppi fjörinu.
Í ár verða veitt verðlaun fyrir frumlegasta og skrautlegasta búninginn .
Foreldrar eru velkomnir á skemmtunina.
Dagskráin stendur til kl: 15:10 eða þar til skóla líkur.
Með kveðju
Foreldrafélagið
Í næstu viku eru tveir dagar í vetrarfrí og tveir starfsdagar kennara. Starfsfólk Flúðaskóla og Undralands notar þessa daga til að kynna sér heilsueflandi skólastarf í Skotlandi. Skotar þykja standa mjög framarlega í framkvæmd á innleiðingu heilsueflingar í skólum og er þetta verkefni orðinn hluti af námskrá þeirra á landsvísu.
Markmiðið með ferðinni er að starfsfólk Flúðaskóla verði hæfara til þess að innleiða heilsueflingu í skólann og allir geti verið virkir þátttakendur í þessu verkefni. Flúðaskóli gerðist formlegur þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi skólar sem stýrt er frá Landlæknisembættinu og mjög margir grunnskólar hafa skráð sig í.
Verkefnið er þverfaglegt þannig að það nær til allra þátta skólastarfs og allir starfsmenn þurfa að vera virkir þátttakendur. Því er ferð sem þessi ómetanlegur þáttur í slíkri vegferð.
Nemendur fá af þessum sökum lengra vetrarfrí en oft áður, því skólinn verður lokaður 13. - 16. febrúar, kennsla verður samkvæmt stundarskrá föstudaginn 17. febrúar.
Síða 1 af 56